Aðalsíða

Vorfundur 2020 27. maí (fjarfundur)

7. maí, 2020
Skólavogin býður til vorfundar miðvikudaginn 27. maí næstkomandi. Fundurinn verður að þessu sinni haldinn á Zoom. Krækju á fundinn má finna hér: https://us02web.zoom.us/j/84027222903 Efni fundarins er innihald kannana, niðurstöður og framkvæmd á öllum skólastigum. Farið er yfir helstu niðurstöður, túlkun þeirra útskýrð og rætt hvaða matsþáttum má bæta við og hvaða matsþáttum er ofaukið. Dagskrá: 09.00-10.30 Leikskóli: Foreldra- og starfsmannakönnun 10.45-12.15 Grunnskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakannanir ásamt eftirvinnslu niðurstaðna samræmdra prófa. 13.30-15.00 Sveitarfélög: Skólavogin og Starfsmannapúlsinn 15.30-17.00 Framhaldsskóli: Nemendakönnun og Starfsmannapúlsinn Þeir sem ekki eiga heimangengt á fundinn eru hvattir til að koma skoðunum sínum á framfæri með því að senda okkur tölvupóst á skolavogin@skolavogin.is. Glærur af fundinum verða gerðar aðgengilegar á vef Skólapúlsins að fundi loknum. Fundurinn er ætlaður skólastjórnendum og tengiliðum Skólapúlsins/Skólavogarinnar/Starfsmannapúlsins. Vinsamlegast tilkynnið um þátttöku með því að senda tölvupóst á skolavogin@skolavogin.is  fyrir 27. maí næstkomandi.