Aðalsíða

Þátttaka eftir skólum

3. október, 2019

Nýrri töflu hefur verið bætt við upplýsingar um þær rannsóknir sem birtar eru í Skólavoginni. Taflan sýnir heildarfjölda þátttakenda og svara í hverjum skóla ásamt svarhlutfalli og þátttökuhlutfalli. Upplýsingarnar gera sveitarfélögum mögulegt að meta betur gæði þess innra mats sem fram fer í einstökum skólum og sinna þar með á skilvirkari hátt ytra mats hlutverki sínu.