Aðalsíða

Uppfærðar nemendaniðurstöður og væntanleg gögn

2. febrúar, 2016

Skólaárið er nú rúmlega hálfnað og meðaltöl nemendakannana skólaársins í Skólavoginni hafa náð miklum stöðugleika.

Nú stendur yfir foreldrakönnun í grunnskólum og starfsmannakönnun í leikskólum og mun gagnasöfnun standa yfir til loka febrúarmánaðar. Í mars fer svo fram foreldrakönnun í leikskólum og starfsmannakönnun í grunnskólum.

Niðurstöður samræmdra prófa verða settar inn í Skólavogina þegar þær berast frá Menntamálastofnun.