Vorfundur 2025
21. maí, 2025
Árlegur vorfundur með notendum Skólapúlsins, Skólavogar og Starfsmannapúlsins fer fram miðvikudaginn 21. maí þetta árið. Fundurinn fer fram á Zoom eins og undanfarin ár.
Efni fundarins er innihald kannana, niðurstöður og framkvæmd á öllum skólastigum. Farið er yfir helstu niðurstöður, túlkun þeirra útskýrð og rætt hvaða matsþáttum má bæta við og hvaða matsþáttum er ofaukið.
Dagskrá:
09.00-10.30 Sveitarfélög: Skólavogin og Starfsmannapúlsinn.
10.45-12.15 Framhaldsskóli: Nemendakönnun og Starfsmannapúlsinn.
13.30-15.00 Grunnskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakannanir.
15.30-17.00 Leikskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakannanir.
Upptaka af fundinum verður gerð aðgengileg hér á síðunni að fundi loknum.