Aðalsíða

Rafræn skilríki ekki lengur tengd vefkerfi Skólavogarinnar

14. ágúst, 2024

Eldri innskráningarþjónusta og umboðskerfi Ísland.is lokar 1. september 2024 og því hefur innskráningargluggi með rafrænum skilríkjum nú verið fjarlægður af vefsvæðum Vísra rannsókna ehf, s.s. www.skolapulsinn.is og www.skolavogin.is.

Frá og með föstudeginum 16. ágúst er eingöngu hægt að skrá sig inn í kerfin með netfangi og lykilorði í því skyni að virkja tveggja þátta auðkenningu. Þegar hún hefur verið virkjuð birtast niðurstöðuskýrslur og/eða kannanir sem notandinn er tengdur við, og þaðan í frá þarf að nota 6 talna auðkenningarkóða við hverja innskráningu auk netfangs og lykilorðs.

Um uppsetningu tveggja þátta auðkenningar má lesa hér.