Aðalsíða

Vorfundur 2017

17. maí, 2017

Skólapúlsinn býður til vorfundar miðvikudaginn 31. maí næstkomandi í stofu H-101 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Stakkahlíð.

Efni fundarins er innihald kannana, niðurstöður og framkvæmd á öllum skólastigum. Farið er yfir helstu niðurstöður, túlkun þeirra útskýrð og rætt hvaða matsþáttum má bæta við og hvaða matsþáttum er ofaukið.

Dagskrá:
09.00-10.30 Leikskóli: Foreldra- og starfsmannakönnun
10.45-12.15 Grunnskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakönnun.
13.30-15.00 Framhaldsskóli: Nemendakönnun.
15.30-17.00 Sveitarfélög: Skólavogin

Þeir sem ekki eiga heimangengt á fundinn eru hvattir til að koma skoðunum sínum á framfæri með því að senda okkur tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is. Glærur af fundinum verða gerðar aðgengilegar á vef Skólapúlsins að fundi loknum.

Fundurinn er ætlaður skólastjórnendum og tengiliðum Skólapúlsins/Skólavogarinnar. Vinsamlegast tilkynnið um þátttöku með því að senda tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is fyrir 26. maí næstkomandi.