Vorfundur 2015
8. maí, 2015
Skólapúlsinn býður til vorfundar þann 3. júní næstkomandi í stofu H-101 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Stakkahlíð. Efni fundarins er innihald kannana, niðurstöður og framkvæmd á öllum skólastigum. Farið er yfir helstu niðurstöður, túlkun þeirra útskýrð og rætt hvaða matsþáttum má bæta við og hvaða matsþáttum er ofaukið.
Dagskrá:
9.00-10.30 Leikskóli: Foreldra- og starfsmannakönnun
10.45-12.15 Grunnskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakönnun
13.30-15.00 Framhaldsskóli: Nemendakönnun
15.30-17.00 Sveitarfélög: Skólavogin
Þeir sem ekki eiga heimangengt á fundinn eru hvattir til að koma skoðunum sínum á framfæri með því að senda okkur tölvupóst á skolavogin@skolavogin.is. Glærur af fundinum verða gerðar aðgengilegar á vef Skólavogarinnar að fundi loknum.
Fundurinn er ætlaður skólastjórnendum og tengiliðum Skólapúlsins/Skólavogarinnar. Vinsamlegast tilkynnið um þátttöku með því að senda tölvupóst á skolavogin@skolavogin.is fyrir 23. maí næstkomandi.