Aðalsíða

Niðurstöður samræmdrar foreldra- og starfsmannakönnunar

7. maí, 2013

Niðurstöður samræmdrar foreldra- og starfsmannakönnunar Skólapúlsins hafa nú verið fluttar í Skólavogina. Svarhlutfall í könnununum var mjög gott. Af þeim 103 skólum sem tóku þátt í foreldrakönnuninni í febrúar náðu 95 skólar a.m.k. 70% svarhlutfalli. Af þeim 63 skólum sem tóku þátt í starfsmannakönnuninni í mars náði 61 skóli a.m.k. 70% svarhlutfalli. Þegar svarhlutfall er lægra en 70% eru niðurstöður í kerfinu birtar með fyrirvara um að þær endurspegla mögulega ekki almennt viðhorf svarenda í skólanum. Svarhlutfall í nemendakönnunum Skólapúlsins er alltaf að lágmarki 80%.